{"product_id":"latra-bjorg-62936-36416","title":"Látra-Björg # 62936","description":"Látra-Björg. Helgi Jónsson tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLátra-Björg var kona mjög stórvaxin og ekki fríð sýnum. Hún var skapstygg og einræn; fór hún stundum með kveðlinga og hugðu menn hún væri ákvæðin og stóð af henni stuggur. Flakkaði hún stundum um sveitir og bað sér beiningar því hún var kona snauð, en ekki vildi hún ganga í vist eða vera öðrum háð. Þá var valdsmaður Jón Benediktsson í Rauðaskriðum. Hugði hann að vandlæta um háttu Látra-Bjargar; þá kvað hún:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTáli pretta illu ann,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ealdrei dóma grundar;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emáli réttu hallar hann,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehvergi sóma stundar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessi vísuorð vóru flutt valdsmanni og varð hann reiður við og stefndi hann Látra-Björgu um kveðling þennan; en þegar málsrekstur fór fram bar hún af sér ámælið og kvað aðra hafa rangfært fyrir sér vísuorðin af illvilja og haft sig fyrir rógi. Hefði hún einmitt kveðið hana um valdsmanninn öfugt við það sem hún væri flutt eftir sér og mátti hún ekki varast að vísan væri lesin aftur á bak. Væri hún rétt höfð svona:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStundar sóma, hvergi hann\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehallar réttu máli,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003egrundar dóma, aldrei ann\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eillu pretta táli.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg mátti valdsmaður láta svo búið standa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinu sinni var það að Látra-Björg skyldi eið vinna sem henni var fyrir hvern mun óljúft; þá kvað hún:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBeiði eg þann sem drýgir dáð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog deyð á hörðum krossi leið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað sneyða þann frá nægð og náð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer neyðir mig um sjöttareið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg eftir það var hún ekki neydd um eiðinn því valdsmanni stóð geigur af ákvæðaorðum hennar og þókti hann þó fylgja sér fast að málum við menn eins og sagan segir líka að hann hafi hitt sjálfan sig fyrir, því þegar hann eitt sinn dæmdi hart einhvern vesælan fyrir litlar sakir þá kvað hinn aumi (segja sumir að það væri Látra-Björg):\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDómari Jón, þú dæmir mig,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003edómurinn þinn er skæður;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003edómarinn sá mun dæma þig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem dómunum öllum ræður.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTók þá Jón hina löngu og ströngu sótt sem leiddi hann til bana og gaf þó jörðina Kotamýrar fátækum í Reykjadal að hann fengi að leysast héðan.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað er mælt að Látra-Björg hafi verið kraftaskáld og er það haft til marks að eitt sinn er sigling hafði lengi dregizt kvað hún þetta:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVaxi mugga og vindurinn,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evil ég brugga ljóða slag,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esigli dugga ein hér inn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eoss að hugga nú í dag.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125149794632,"sku":"OSC-36416","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49960.jpg?v=1754797989","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/latra-bjorg-62936-36416","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}