{"product_id":"lattu-loga-drengur-85872-20161","title":"Láttu loga, drengur # 85872","description":"Láttu loga, drengur. Skáldsaga eftir Ingólf Jónsson frá Prestbakka. Myndskreyting Atli Már.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e9.nóvember 1966 segir \u003cb\u003eTíminn\u003c\/b\u003e frá útkomu nýrrar skáldsögu eftir Ingólf Jónsson frá Prestsbakka. Þar segir: -\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkuggsjá sendir nú frá sér skáldsögu eftir Ingólf Jónsson, frá\u003cbr\u003ePrestsbakka og nefnist hún Láttu\u003cbr\u003eloga, drengur. Skáldsagan greinir\u003cbr\u003efrá dögum fjármálamanns og mun\u003cbr\u003emönnum vart dyljast, hver fyrirmynd\u003cbr\u003ehöfundar er að aðalpersónunni í þessari sögu. Sagan segir frá ferð sögumanns um leiksvið\u003cbr\u003elífsins, að því er segir á bókarkápu. Ganga hans er hröð, hröð\u003cbr\u003eog miskunnarlaus, og hann ber\u003cbr\u003egrímu kulda og tilfinningaleysis\u003cbr\u003eallt sitt líf. Þetta er örlagasaga\u003cbr\u003emanns, sem aldrei vildi sýnast\u003cbr\u003ebetri en hann var og gleymdi\u003cbr\u003esjálfum sér i geislaflóði gullsins,\u003cbr\u003eeins mesta bölvalds mannanna.\u003cbr\u003eGleði og sorg, ást og hatur féllu\u003cbr\u003eí hlut hans og hann hló storkandi\u003cbr\u003eað sjálfum sér og samtíð\u003cbr\u003esinni, sem vildi beygja hann og\u003cbr\u003ebrjóta. En þrátt fyrir allt, þrátt\u003cbr\u003efyrir beizkju, hörku og kulda,\u003cbr\u003evar hann innst inni gljúpur og\u003cbr\u003eviðkvæmur, og vinur vina sinna,\u003cbr\u003eeinnig við eina óvinin, sem hann\u003cbr\u003eóttaðist, óvininn, sem alltaf var á\u003cbr\u003emiðju leiksviðinu og beið færis. . .","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126150725960,"sku":"OSC-20161","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44364.jpg?v=1754823422","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/lattu-loga-drengur-85872-20161","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}