{"product_id":"laxaveislan-mikla-83609-43575","title":"Laxaveislan mikla # 83609","description":"Laxaveislan mikla... og þjóðin borgar brúsann. En ber enginn ábyrgð? Eftir Halldór Halldórsson.\u003cbr\u003eÍ bókinni heldur höfundur því fram að óðagot, skortur á rannsóknum og þekkingarleysi fiskeldismanna ásamt misnotkun valds og aðstöðu af hálfu stjórnmála- og embættismanna eigi verulega sök á því að þjóðin hafi glatað 10-11 milljörðum króna á fiskeldisævintýrinu. Í bókinni kemur fram að gera megi ráð fyrir að 40-50 fiskeldisfyrirtæki hafi orðið gjaldþrota og tveir til þrír tugir fyrirtækja hætt rekstri. Tjónið vegna þessa þurfi þjóðin nú að borga.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókarhöfundur segir í inngangsorðum: \"Saman fór göslaraháttur og ótrúlegt þekkingarleysi á fiskeldinu. Milljörðum króna var mokað út í framkvæmdir og fyrirtæki, sem voru vonlaus frá byrjun. Ekkert var hirt um alvarlegar aðvaranir framsýnna manna, og ekkert skeytt um um það, að byggja ákvarðanirnar á reynslu og vísindalegri þekkingu. Milljarðaframkvæmdir eins og Íslandslax var della frá grunni. Að lokum var reynt að fela hneykslin, þegja yfir svörtum skýrslum og hefta upplýsingar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar við bætist svo pólitísk spilling út frá stjórnmálamönnum, sem sátu í stjórnum sjóða, hygluðu sínum mönnum og héldu jafnvel áfram að moka hundraða milljónum í vini og fylgismenn, þó fyrirtækin væru þegar orðin gjaldþrota.\"","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124478738760,"sku":"OSC-43575","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/47758.jpg?v=1754782826","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/laxaveislan-mikla-83609-43575","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}