{"product_id":"leikandinn-70807-61037","title":"Leikandinn # 70807","description":"Leikandinn. Greinar um menntun ungra barna. Ritstjóri Jóhanna Einarsdóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMenntun ungra barna hefur verið í brennidepli víða um heim á undanförnum áratugum. Aukin áhersla á menntun yngstu borgaranna skýrist m.a. af niðurstöðum fjölda vísindarannsókna sem sýna verulegan ávinning af góðri menntun þeirra, ekki einungis fyrir þau sjálf heldur einnig fyrir samfélagið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessi bók inniheldur 18 fræðigreinar sem hafa að geyma niðurstöður rannsókna um menntun ungra barna frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um réttindi og sjónarmið barna, mikilvægi leiks og starfsaðferðir með ungum börnum. Jafnframt er rannsóknum á samfellu í námi barna gerð skil. Sjónum er einnig beint að börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og mikilvægi fjölbreytilegra kennsluhátta fyrir öll börn. Þá er greint frá rannsóknum sem varpa ljósi á reynslu og sjónarmið foreldra ungra barna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókinni er ætlað að mæta brýnni þörf fyrir íslenskt efni um menntun ungra barna handa kennurum, tómstundafræðingum, þroskaþjálfum og öðru fagfólki á sviði uppeldis- og menntavísinda. Þess er einnig vænst að bókin nýtist háskólanemum sem leggja stund á þessar fræðigreinar. Jafnframt á bókin erindi við þá sem móta stefnu í málefnum barna og aðra sem láta sig menntun yngstu borgaranna varða.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121787568456,"sku":"OSC-61037","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70807.jpg?v=1754730332","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/leikandinn-70807-61037","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}