{"product_id":"leiki-a-langspil-73731-52710","title":"Leikið á langspil # 73731","description":"\u003cp id=\"mwDQ\"\u003eÞóroddur fæddist á Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var sonur \u003ca rel=\"mw:WikiLink\" href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Gu%C3%B0mundur_Fri%C3%B0j%C3%B3nsson\" title=\"Guðmundur Friðjónsson\" id=\"mwDg\"\u003eGuðmundar Friðjónssonar\u003c\/a\u003e, skálds, og konu hans, Guðrúnar Lilju Oddsdóttur. Þóroddur lauk prófi frá héraðsskólanum á Laugum vorið 1926. Búfræðingur frá Kalnesi í Noregi varð hann 1929. Í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn stundaði hann síðan nám í landafræði, dýrafræði, grasafræði og jarðfræði, og lauk íslensku kennaraprófi árið 1935. Þóroddur stundaði nám við Trinity College í Dublin í enskum bókmenntum 1948–1949. Hann var kennari við ýmsa framhaldsskóla og einnig skólastjóri Héraðsskólans á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Sigurður Einarsson í Holti sagði að Þóroddur hafi verið: „… þjálfaður í háskóla tungunnar hjá föður sínum, sem einhver var orðsnjallastur í máli allra sinna samtíðarmanna …“\u003csup class=\"mw-ref reference\" id=\"cite_ref-:0_2-0\" rel=\"dc:references\" data-mw='{\"name\":\"ref\",\"attrs\":{\"name\":\":0\"}}'\u003e\u003ca href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/%C3%9E%C3%B3roddur_Gu%C3%B0mundsson#cite_note-:0-2\" id=\"mwDw\"\u003e\u003cspan class=\"mw-reflink-text\" id=\"mwEA\"\u003e\u003cspan class=\"cite-bracket\" id=\"mwEQ\"\u003e[\u003c\/span\u003e2\u003cspan class=\"cite-bracket\" id=\"mwEg\"\u003e]\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/a\u003e\u003c\/sup\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp id=\"mwEw\"\u003eÞóroddur Guðmundsson ritaði ljóð og smásögur, ferðasögur auk margra ritgerða og greina. Hann stundaði einnig ritstjórn og útgáfu og tók þátt í félagsstörfum á vegum Félags íslenskra rithöfunda. Fyrsta bók Þórodds kom út árið 1943, smásagnasafnið \u003ci id=\"mwFA\"\u003eSkýjadans\u003c\/i\u003e. Síðan komu ljóðabækur, ferðasaga, þýðingar auk fleiri smásagna. Sigurður Einarsson segir ennfremur um þýðingar Þórodds: „Þær einkennast af næmri innlifun, hagleik og öruggu valdi á tungunni …“ Þóroddur Guðmundsson starfaði ásamt ritstörfum við kennslu mest af sinni ævi og kenndi hann til ársins 1972.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123089178952,"sku":"OSC-52710","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89440_be3b5464-2355-4349-9617-0d4f6db5a852.jpg?v=1777303192","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/leiki-a-langspil-73731-52710","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}