{"product_id":"leikid-a-langspil-89440","title":"Leikið á langspil # 89440","description":"\u003cp\u003e´\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞóroddur fæddist á Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var sonur Guðmundar Friðjónssonar, skálds, og konu hans, Guðrúnar Lilju Oddsdóttur. Þóroddur lauk prófi frá héraðsskólanum á Laugum vorið 1926. Búfræðingur frá Kalnesi í Noregi varð hann 1929. Í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn stundaði hann síðan nám í landafræði, dýrafræði, grasafræði og jarðfræði, og lauk íslensku kennaraprófi árið 1935. Þóroddur stundaði nám við Trinity College í Dublin í enskum bókmenntum 1948–1949. Hann var kennari við ýmsa framhaldsskóla og einnig skólastjóri Héraðsskólans á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Sigurður Einarsson í Holti sagði að Þóroddur hafi verið: „… þjálfaður í háskóla tungunnar hjá föður sínum, sem einhver var orðsnjallastur í máli allra sinna samtíðarmanna …“[2]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞóroddur Guðmundsson ritaði ljóð og smásögur, ferðasögur auk margra ritgerða og greina. Hann stundaði einnig ritstjórn og útgáfu og tók þátt í félagsstörfum á vegum Félags íslenskra rithöfunda. Fyrsta bók Þórodds kom út árið 1943, smásagnasafnið Skýjadans. Síðan komu ljóðabækur, ferðasaga, þýðingar auk fleiri smásagna. Sigurður Einarsson segir ennfremur um þýðingar Þórodds: „Þær einkennast af næmri innlifun, hagleik og öruggu valdi á tungunni …“ Þóroddur Guðmundsson starfaði ásamt ritstörfum við kennslu mest af sinni ævi og kenndi hann til ársins 1972.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52988210348360,"sku":null,"price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89440.jpg?v=1777303034","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/leikid-a-langspil-89440","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}