{"product_id":"leita-i-sandinn-51812-45468","title":"Leitað í sandinn # 51812","description":"Leitað í sandinn. Ljóð eftir Ólaf Kr. Þórðarson.\u003cbr\u003eÓlafur Kr. Þórðarson fæddist í Haga á Barðaströnd í ágúst 1918, sonur hjónanna Þórðar Ólafssonar á Innri-Múla á Barðaströnd og Steinunnar Bjargar Ólafsdóttur. Kona Ólafs var Helga Vigfúsdóttir frá Hrísnesi á Barðaströnd.\u003cbr\u003eÓlafur ólst upp á Barðaströndinni, hann stundaði nám við Héraðsskólann í Reykjanesi og lauk námi frá Búnaðarskólanum á Hólum árið 1942. Stundaði bústörf og farkennslu á Barðaströnd á árunum 1943-46 og frá 1954 til 1960 og bjó þá í Hrísnesi. Hann var skólastjóri á Tálknafirði og kennari á Patreksfirði en flutti svo með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur árið 1961. Hann kenndi síðan í Ytri-Njarðvík, Vogaskóla og síðast í Álftamýrarskóla til starfsloka. Lengst af var hann við unglingakennslu og þá aðallega í íslensku. Leitað í sandinn er eina ljóðabók Ólafs Kr. Þórðarsonar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124122452296,"sku":"OSC-45468","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50118.jpg?v=1754777978","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/leita-i-sandinn-51812-45468","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}