{"product_id":"leitin-a-fjarskanum-24920-15077","title":"Leitin að fjarskanum # 24920","description":"Leitin að fjarskanum. Ljóð eftir Njörð P. Njarðvík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eSandurinn í fjörunni\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSandurinn í fjörunni er þolinmóður\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ lygnum dögum bíður hann öldunnar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí þurri mýkt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elætur undan korn fyrir korn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eleysist upp\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí hrynföstu dunandi sogi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eskolast aftur í samfellda heild\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí votri mýkt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem leyfir iljum þínum að marka sig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003edjúpum sporum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ dögum þjótandi vinda\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elætur hann brimið berja sig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí strandlanga skel\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem herðist við lamstur boðanna\u003cbr\u003e\u003cbr\u003euns hann brotnar af eigin hörku\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar aftur lygnir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eslúpnar hann í mildi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog skolast hægt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eyfir spor þín","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126616555848,"sku":"OSC-15077","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/24920.jpg?v=1754830623","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/leitin-a-fjarskanum-24920-15077","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}