{"product_id":"lifandilifslaekur-78795-49974","title":"Lifandilífslækur # 78795","description":"Lifandilífslækur. Skáldsaga eftir Bergsvein Birgisson.\u003cbr\u003eÁrið er 1784 og Skaftáreldar hafa geisað á Íslandi í heilt ár. Í Kaupmannahöfn hittast ráðamenn til þess að ákveða hvað gera eigi við innbyggjara þessarar eyju arfakóngsins, hvort flytja skuli alla verkfæra Íslendinga til Danmerkur að vinna þar í verksmiðjum sem þarfnast vinnuafls. Að lokum er ákveðið að senda fulltrúa í alla landshluta að meta ástand þjóðarinnar áður en ákvörðun er tekin. Útsendari rentukammers til Strandasýslu er ungur háskólamaður af hálfíslenskum uppruna, Magnús Árelíus.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMagnús Árelíus er innblásinn af anda upplýsingarinnar og hlakkar til að mæla Ísland með sínum nýju mælitækjum, ekki síst vill hann komast á Cap Nord, Hornbjarg. En ferðalagið tekur óvænta stefnu þegar hann kynnist Íslendingum og kemst að raun um að raunveruleikinn er kannski flóknari en mælitæki hans segja til um – sérstaklega norður á Ströndum. Þar sem Lifandilífslækur rennur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123686211912,"sku":"OSC-49974","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55546.jpg?v=1754764627","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/lifandilifslaekur-78795-49974","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}