{"product_id":"lindir-nia-58433-52224","title":"Lindir niða # 58433","description":"Lindir niða. Ljóð og þýðingar eftir Guðmund E. Geirdal.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér eru auk frumortra ljóða þýðingar Guðmundar á ljóðum Axel Karlfeldt. - Chr. K.F. Molbech. - Rudolf Nielsen.\u003cbr\u003eGuðmundur E. Geirdal var fæddur að Brekku í Gufudalssveit árið 1885. Foreldrar hans voru Eyjólfur Bjarnason bóndi í Múla í Gilsfirði og María Bjarnadóttir á Kveingrjóti. Guðmundur vann öll algeng störf til sjávar og sveita á unglingsárunum en gekk síðan í Kennaraskólan og lauk þaðan prófi árið 1912. Uppfrá því stundaði hann kennslu á vetrum en ýmsis önnur störf á sumrum. Hann var m.a. lögregluþjónn á Ísafirði, Sýsluskrifari nokkur ár en síðar hafnargjaldkeri um margra ára skeið. Guðmundur gaf út fjórar ljóðabækur og eina ævintýrabók fyrir börn. Guðmundur var mjög tónelskur maður og hafði mikin áhuga á tónlist. Ýmis tónskáld hafa samið lög við ljóð Guðmundar en kunnugast er þó líklega lag Sigvalda Kaldalóns við ljóð Guðmundar Þú, eina hjartans yndið mitt.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123139707208,"sku":"OSC-52224","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/58432.jpg?v=1754758392","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/lindir-nia-58433-52224","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}