{"product_id":"linir-dagar-68744-59694","title":"Liðnir dagar # 68744","description":"Liðnir dagar. Stutt æviágrip. Jón St. Melstað segir frá.\u003cbr\u003eJón St. Melstað var Húnvetningur að ætt, og uppalinn þar vestra til fullorðinsára. Ekki hlaut hann fjármuni í veganesti út í lífið. En hann hlaut þor og þrek, bjartsýni og kjark í vöggugjöf, og þeir eiginleikar hafa reynzt honum tryggir förunautar á langri ævi. Tæplega tvítugur sigldi Jón til Noregs. Dvaldi hann þar um nokkur ár og vann þar á búgörðum jafnframt því hann stundaði nám. Mun þessi för og dvölin ytra hafa verið honum lærdómsrík, og vafalaust gæltt stórhug hans til atorku og umbóta í búskapnum síðar. Eftir heimkomuna fékkst Jón við ýmis konar störf, en stuttu eftir aldamótin staðfesti hann ráð sitt og gekk að eiga eyfirzka heimasætu, Albínu Pétursdóttur, frá Svertingsstöðum í Kaupangurssveit. Byrjuðu ungu hjónin þar búskap, en árið 1912 keyptu þau Hallgilsstaði i Hörgársveit. Og var Jón æ síðan kenndur við Hallgilsstaði.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122047844680,"sku":"OSC-59694","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68744.jpg?v=1754734860","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/linir-dagar-68744-59694","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}