{"product_id":"linur-i-lofa-62931-55472","title":"Línur í lófa # 62931","description":"Línur í lófa. Bundið mál eftir Þóru Jónsdóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eAllt í heimi\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBörnin mín\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþið sem eruð fullvaxin og horfin frá mér\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg læt hugann reika\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etil þess tíma er við áttum saman\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg man hve þorsti ykkar var sár\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað vita meira öðlast lífsreynslu\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem gæti fleytt ykkur fram til þroska\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eopnað nýjar víddir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞannig er öllum börnum farið hygg ég\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOft keypti ég af ykkur þægð og sagði:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEf þú gerir þetta eða hitt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eef þú verður svona og svona\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþá skal ég segja þér allt í heimi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessu fyrirheiti félluð þið ávallt fyrir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elíklega af því hve heillandi fráleitt það var\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar til efndanna kom\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esagði ég jafnan: Spyrjið mig þá\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn hvernig á að spyrja\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNú vil ég segja eitthvað af því\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem ég lofaði þá en gerði ekki\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþví annað virtist brýnna\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg legg nú af stað eftir óljósri slóð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eminnug þess að þúsund mílna ferð\u003cbr\u003ehefst í einu skrefi","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122740363592,"sku":"OSC-55472","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62931.jpg?v=1754749032","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/linur-i-lofa-62931-55472","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}