{"product_id":"lit-og-tillogur-skipulagsnefndar-atvinnumala-86917-46587","title":"Álit og tillögur Skipulagsnefndar atvinnumála # 86917","description":"Álit og tillögur Skipulagsnefndar atvinnumála. Skýrla þessi var gjarnan nefnd \u003ci\u003eRauðka\u003c\/i\u003e.\u003cbr\u003eEn í þessari skipulansnefns atvinnumála sátu eftirtaldir menn. (Reyndar er svo skemmtileg grein um nefndina í tímaritinu Storm að ég ætla að endurrita lista nefndarmanna þaðan). - Héðinn Valimarsson, umboðsmaður breska olíuhringsins, Emil Jónsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Ásgeir Stefánsson, útgerðarstjóri í Hafnarfirði, Steingrímur Steinþórsson, sem þá var skólastjóri á Hólum, Jónas Jónasson, fyrrv. ráðherra.\u003cbr\u003eEinsog menn sjá, voru tveir nefndarmannanna teknir úr Hafnarfirði, og var það ekki nema eðlilegt, því að þar hafði skipulag sósíalismans undir stjórn þessara tveggja manna fært bæjarfélaginu blessun og allsnægtir undanfarin ár.\u003cbr\u003eÞá var auðvitað líka sjálfsagt að taka Steingrím Steinþórsson í nefndina, því að hann stjórnaði ríkisrekstrinum á Hólum. Hafði hann fengið 50-60 þús. kr. úr ríkissjóði til umbóta á jörðinni og til að kaupa bústofn fyrir og tapið á jörðinni á tæpum tveimur árum ekki orðið nema rúmar 16 þúsund krónur. Þá var og Héðinn Valdimarsson í raun og veru sjálfkjörinn, því að hann hafði reynsluna í því hvernig átti að ná erlendum gjaldeyri inn í landið og byggja villur fyrir umboðslaun í breskum sterlingspundum.\u003cbr\u003eJónas Jónasson varð aðallega fyrir kjörinu vegna samúðar hans og kærleika til allra stétta þjóðfélagsins, en meðfram voru það líka sárabætur fyrir að verða ekki ráðherra í hinu nýstofnaða íslenska ráðstjóranrríki.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440297079112,"sku":"OSC-46587","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/86917.jpg?v=1770471310","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/lit-og-tillogur-skipulagsnefndar-atvinnumala-86917-46587","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}