{"product_id":"livserindringer-1813-1857-35562-33103","title":"Livserindringer 1813-1857 # 35562","description":"Livserindringer 1813-1857 af Benedicte Arnesen-Kall.\u003cbr\u003eÍ Kvennablaðinu 1. árg. 12.tbl. 1895 er minningargrein um frk. Benedicte Arnesen-Kall. Þar segir m.a. Frk. Benedikte Arnesen-Kall er fædd íSlagelse í Danmörku 13. nóv. 1813. Faðir hennar var Páll Árnason, íslenzkur maður, sem þá var rektor við lærða skólann þar í bænum(f. 1777, d. 1851), en móðir hennar var norsk að ætt. Páli Árnason er kunnur málfræðingur og orðbókahöf., og var í miklu áliti meðal lærðra manna, og eftir að hann flutti til Kaupmannahafnar í nánum kunningsskap við marga hina helztu menn í Kaupmannahöfn og víðar, einkum vísindamenn. Það var þvi eðlilegt, að hugur dóttur hans hneigðist að bóklegum fræðum, enda fjekk hún gott uppeldi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEftir að hún var fullþroska, var hún í nokkur ár hjá Wilster ofursta og kendi í husi hans. — Þá fór hún í ferðir um Noreg og Þýzkaland, og á Þýzkalandi var hún nokkur ár hjá ættingjum sínum. Síðar fðr hún i langferðir víða um heim, og hafa fáar konur verið víðförulli. Hún fór um Frakkland, Sviss, ítaliu, Tyrkland og austur um Asíu. — 1867 fór hún um ísland. — Heim- sótti hún þá föðursystur sína, frú Valgerði Briem á Grund í Eyjafirði. — Hún ritar af miklum velvilja um íslendinga i ferðabók sinni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125377270088,"sku":"OSC-33103","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/35622.jpg?v=1754803639","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/livserindringer-1813-1857-35562-33103","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}