{"product_id":"ljoabok-53158-47935","title":"Ljóðabók # 53158","description":"Ljóðabók. Ljóð eftir Einar Gunnrasson. Þ. H. Magnússon sá um útgáfuna.\u003cbr\u003eEinar Gunnarsson fæddist í Völvuholti í Mjóafirði í desember 1911. Foreldrar hans voru Gunnar Sigfússon, bóndi þar, og kona hans Anna Jórunn Jónsdóttir. Einar var níundi í hópi ellefu systkina. Innan við fermingu fór Einar að heiman og sá sér farboða eftir það. Hann var einn vetur í Reykholtsskóla í Borgarfirði og eitt ár var hann í Danmörku. Hann var lengst af búsettur á Suðurlandi.\u003cbr\u003eEinar var starfsmaður Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi frá upphafi verksmiðjunnar og í aldarfjórðung eða þar til hann varð óvinnufær af veikindum.\u003cbr\u003eÞessi bók geymir ekki brauðstrit Einars, heldur andvökur hans og tómstundaverk. Ást á náttúrunni og landinu er rík í ljóðum hans sem og einlægt hatur á striðsbrölti.\u003cbr\u003eFlest kvæðin í bókinni eru tekin úr allmikilli kompu, sem Einar átti í fórum sínum. Vonandi hefur oftast tekist að lesa rétt úr rithönd Einars. Þar sem bókin kom út að Einari látnum gafst ekki kostur á að bera einstök vafaatriði undir hann.\u003cbr\u003eÞetta er eina bókin sem komið hefur út með ljóðum Einars Gunnarssonar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123941114184,"sku":"OSC-47935","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53158.jpg?v=1754771081","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljoabok-53158-47935","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}