{"product_id":"ljoasafn-hannesar-petursson-80266-67664","title":"Ljóðasafn Hannesar Pétursson # 80266","description":"\u003cp\u003eLjóðasafn Hannesar Pétursson. Njörður P. Njarðvík ritar formála.\u003cbr\u003eHannes Pétursson er löngu viðurkenndur sem eitt helsta skáld 20. aldar. Allt frá því hann sendi frá sér \u003cem\u003eKvæðabók\u003c\/em\u003e árið 1955, aðeins 23 ára að aldri, hefur þjóðin tekið skáldskap hans fagnandi. Fá skáld yrkja af jafn miklum hagleik og öryggi, bæði undir hefðbundnum háttum sem og í frjálsara formi, og bragleikni Hannesar helst í hendur við einstaka myndvísi. Hannes yrkir um mannlegar tilfinningar í öllum sínum fjölbreytileika, en ekki síst eru það yrkisefni tengd náttúru og sögu Íslands sem hafa gert hann ástsælan með þjóðinni.\u003cbr\u003eÍ þessu ljóðasafni sem út kom 1998 og var endurútgefið 2005 er að finna öll ljóð Hannesar fram að þeim tíma. Auk \u003cem\u003eKvæðabókar\u003c\/em\u003e eru það bækurnar\u003cem\u003e Í sumardölum, Stund og staðir, Innlönd, Rímblöð, Óður um Ísland, Heimkynni við sjó, 36 ljóð\u003c\/em\u003e og \u003cem\u003eEldhylur\u003c\/em\u003e, en fyrir þá síðastnefndu hlaut Hannes Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1993.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120770580808,"sku":"OSC-67664","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90581.jpg?v=1790680637","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljoasafn-hannesar-petursson-80266-67664","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}