{"product_id":"ljodaurval-johannesar-ur-kotlum-88203-72808","title":"Ljóðaúrval Jóhannesar úr Kötlum # 88203","description":"Ljóðaúrval Jóhannesar úr Kötlum.\u003cbr\u003eSkáldið Jóhannes úr Kötlum lifði mikla umbrotatíma í sögu og bókmenntum og ef velja ætti eitt skáld sem fulltrúa 20. aldarinnar á Íslandi yrði það næsta óhjákvæmilega hann. Ekkert íslenskt skáld sýnir eins nákvæmlega þróun ljóðlistarinnar hér á landi og þessi fjölhæfi og afkastamikli höfundur sem færði þjóðinni svo mörg einstæð og áhrifamikil ljóð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJóhannes úr Kötlum hóf feril sinn sem nýrómantískt skáld en á kreppuárunum var hann í broddi fylkingar róttækra skálda. Í umróti stríðsára og eftirstríðsára gerði hann tilraunir með frjálsa bragarhætti og endurnýjaði form sitt af listfengi og frumleika. Loks náði hann í alþjóðlega róttæka bylgju á sjöunda áratugnum og stóð á nýjum hátindi ferils síns þegar hann féll frá.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ ljóðaúrvali Jóhannesar eru ljóð úr öllum bókum hans fyrir fullorðna, bæði frumsamin og þýdd, sem gefa breiða mynd af margslungnum ljóðheimi skáldsins. Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritar inngang.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440541561160,"sku":"OSC-72808","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/88203.jpg?v=1770475044","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljodaurval-johannesar-ur-kotlum-88203-72808","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}