{"product_id":"ljodveldid-sland-86883-31650","title":"Ljóðveldið Ísland # 86883","description":"Ljóðveldið Ísland. 65 ár í 66 erindum við þig. Ljóð eftir Sindra Freysson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\"Ljóðveldið Ísland, er hápólitískt söguljóð, þarsem saga lýðveldisins í 65 ár er rakin í 66 erindum, eins og segir á titilsíðu. Bókin er beint viðbragð við kreppunni og þar veltir höfundur fyrir sér sögu íslenska lýðveldisins og stiklar á ýmsum atburðum, bæði stórum og smáum. Markmiðið er að greina íslenska lýðveldið og varpa ljóði, afsakið, ljósi á kreppuna sem nú fer hörðum höndum um bankareikninga (en ekki bensíntanka ef marka má fáránlegt bílafarganið) Íslendinga. Í heildina má segja að þetta heppnist. Þrátt fyrir að stefið ‘ljóðveldið’ verði ofurlítið þreytt þegar á líður, þá nær það ekki að draga úr þeim slagkrafti sem einkennir bókina. Lokakaflanir, þeir sem eru næst okkur í tíma, eru kannski hvað óreglulegastir í laginu, enda þar af mörgu að taka og fjarlægðin hefur ekki gert höfundi eins auðvelt fyrir að raða atburðum, eins og fyrr segir bæði smáum og stórum, í það sláandi samhengi sem hann nær að fanga víða framar í bókinni. Á hinn bóginn er kannski eðlilegt að mikið gangi á undir lokin, bálkurinn er þess eðlis og jafnvel mætti segja að finna megi samspil milli þeirrar upplausnar sem ljóðið lýsir og þeirrar upplausnar sem kemur inn í ljóðið þarna undir lokin.\" Úlfhildur Dagsdóttir.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440256872776,"sku":"OSC-31650","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/33934.jpg?v=1770470809","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljodveldid-sland-86883-31650","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}