{"product_id":"ljolinudans-41465-38233","title":"Ljóðlínudans # 41465","description":"Ljóðlínudans. Ljóð eftir Sigurð Pálsson.\u003cbr\u003e„Eldforn gyðingamálsháttur hljóðar svo : Þegar maðurinn reynir að hugsa, fer Guð að skellihlæja“ Ég get vel ímyndað mér það. Þó held ég að honum þyki sérstaklega hlægileg sú grein mannlegrar viðleitni sem kölluð er ljóð og okkur finnst einstakur vitnisburður mannlegrar sérstöðu eða mennskunnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMaðurinn reynir nefnilega að hugsa eins og sá sem skapar þegar hann yrkir ljóð ; hann reynir að hugsa um ástina, um fögnuðinn, um harminn, um trúna. Þessir fjórir hornsteinar renna saman í órofa heild í huga mínum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg get ómögulega lesið í sundur þessi grundvallaratriði ljóðlistarinnar eins og menn lesa sundur póst á pósthúsinu. Mér finnst þetta fernt : ástin, harmurinn , fögnuðurinn og trúin yfirleitt saman í blöndu í ljóðaskálinni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg ætla að sýna ykkur nokkur ljóð þó ég viti það ofurvel að þegar maðurinn reynir að hugsa fer Guð að skellihlæja, en er ekki göfugra þegar öllu er á botninn hvolft að skemmta Guði en skrattanum?“\u003cbr\u003e\u003cb\u003eS. P.\u003c\/b\u003e (Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124984742216,"sku":"OSC-38233","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/41465.jpg?v=1754794831","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljolinudans-41465-38233","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}