{"product_id":"ljomaeli-gisla-thorarensens-60687-53911","title":"Ljóðmæli Gísla Thórarensens # 60687","description":"Ljóðmæli Gísla Thórarensens.\u003cbr\u003eMeðal efnis er æviágrip Gísla og en vise indeholdende en mærkelig spaadom om indtrædelsen af en islandsk kongefamilie. Merkur spádómur.\u003cbr\u003eGísli var fæddur 22. nóvember 1818. Hann var sonur Sigurðar Thorarensens prests í Hraungerði og konu hans, Guðrúnar Vigfúsdóttur, systir Bjarna Thorarensens. Gísli útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1840. Síðan lagði hann stund á guðfræði við Hafnarháskóla en lauk ekki prófi. Þá lagði hann einnig stund á fornfræði og skáldskap. Í Kaupmannahöfn fyllti hann flokk Fjölnismanna og dáði mjög Jónas Hallgrímsson eins og vel kemur fram í minningarkvæði hans um skáldið sem birtist í Fjölni 1847.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGísli sneri alkominn heim til Íslands 1847 og kenndi veturinn eftir við Latínuskólann í Reykjavík. Hann varð síðan prestur í Sólheimaþingum í Skaftafellssýslu til 1874 og bjó á Felli í Mýrdal. Skömmu eftir komuna í Mýrdalinn kvæntist Gísli Ingibjörgu dóttur Páls Melsteds amtmanns. Gísla var veitt Stokkseyrar og Kaldaðarness prestakall í Árnessýslu 1873 og flutti árið eftir að Ásgautsstöðum í Flóa. Hann andaðist á jóladag sama ár. Var þá kominn til kirkju og ætlaði að fara að halda jólamessu. Ljóðmæli Gísla Thórarensens voru prentuð í Reykjavík 1885 á kostnað Einars Þórðarsonar. Ekki er getið um hver sá um útgáfuna og skrifaði formála en sögn er um að það hafi verið Jón Ólafsson.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122958532936,"sku":"OSC-53911","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60687.jpg?v=1754753913","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljomaeli-gisla-thorarensens-60687-53911","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}