{"product_id":"ljoold-55673-50082","title":"Ljóðöld # 55673","description":"Ljóðöld. 100 ljóð á aldarafmæli. Ljóð eftir Guðmund Böðvarssson. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir.\u003cbr\u003eÞann 1. september s.l. voru hundrað ár liðin frá fæðingu Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Í tilefni af því kom út bókin Ljóðöld með hundrað úrvalsljóðum skáldsins og grein um líf hans og list eftir Silju Aðalsteinsdóttur, ævisöguritara hans. Guðmundur Böðvarsson var - með orðum Kristins E. Andréssonar - \"eitt af ævintýrunum í íslenskum bókmenntum , nánast óskólagenginn sveitastrákur sem skipaði sér á fremsta bekk íslenskra skálda á 20. öld. Með fágætlega einlægum ljóðum, hvort sem þau snertu sáran streng, ljúfan eða stríðan, öðlaðist Guðmundur varanlegan sess í huga og hjarta þjóðar sinnar. Þessi bók er kærkomin öllum unnendum íslenskra ljóða.\" (Bókatíðindi 2004).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123618775368,"sku":"OSC-50082","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55673.jpg?v=1754764336","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ljoold-55673-50082","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}