{"product_id":"log-45649-24854","title":"Log # 45649","description":"Log. Ljóð eftir Steingerði Guðmundsdóttir.\u003cbr\u003eSteingerður Guðmundsdóttir fæddist á Ísafirði 12. október 1912. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, sem þekktastur var sem Guðmundur skólaskáld, og kona hans, Ólína Þorsteinsdóttir. Steingerður var alla tíð ógift og barnlaus. Þegar Steingerður var á fyrsta ári fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur og átti þar heima síðan. Steingerður vann á yngri árum ýmis almenn störf, sótti einkatíma í íslensku og erlendum tungumálum, nam höggmyndalist hjá Einari Jónssyni 1931­32 og var í leiklistarskóla Lárusar Pálssonar 1940­41. Hún stundaði framhaldsnám í leiklist í New York 1943­46, fyrsta árið í The American Academy of Dramatic Art, en tvö síðari árin í einkaskóla hins fræga rússneska leikstjóra Theodors Komissarjevskís. Jafnframt sótti hún tíma í ballett- og látbragðslistarskóla rússneska ballettmeistarans Mihail Mordkins. Þá kynnti hún sér leiklist í Svíþjóð haustið 1946 og Bretlandi haustið 1947. Í námi sínu gerði Steingerður monodramað, einleikinn, að sérgrein sinni og hélt sjálfstæða einleikssýningu í Iðnó, þegar hún kom heim frá námi vorið 1947. Sviðshlutverk hennar urðu eftirtalin: Anna í Orðinu eftir Kaj Munk hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1942­43, María mey í Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson hjá L.R. 1948­49 og Celía í Sem yður þóknast eftir William Shakespeare í Þjóðleikhúsinu 1952. Árin 1955­60 starfaði hún sem leiklistargagnrýnandi; fyrst hjá Frjálsri þjóð, en síðar og lengst Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins. Hún samdi fjölmarga einleiki og flutti sjálf í útvarp um þrjátíu ára skeið.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125739815240,"sku":"OSC-24854","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/45649.jpg?v=1754815526","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/log-45649-24854","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}