{"product_id":"loggan-sem-hlo-77304-24077","title":"Löggan sem hló # 77304","description":"Löggan sem hló. Skáldsaga um glæp. Eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö. Ólafur Jónsson þýddi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann stöðvaði bílinn, bretti upp frakkakragann og steig út í ausandi rigninguna. Hann sá stóran rauðan strætisvagn þversu á gangstéttinni og hafði framhluti hans rutt niður og sumpart brotist í gegnum háa girðingu úr stálneti handan við stéttina. Hann sá líka svartan Plymouth-bíl með hvítum aurhlífum og orðin Lögregla með hvítu letri yfir dyrunum. Viðvörunarljós loguðu á lögreglubílnum og í miðjum geisla ljósblossans stóðu tveir einkennisklæddir lögreglumenn með byssur í höndum. Þeir voru báðir furðu fölleitir. Annar hafði spúð á leðurjakkann sinn og var nú að þurrka sér með blautum vasaklút heldur skömmustulegur á svipinn.\u003cbr\u003e- Hvað er á seyði, spurði Gunvald Larsson.\u003cbr\u003e- Það... það er fullt af dauðu fólki í vagninum, sagði annar lögregluþjónninn.\u003cbr\u003e- Já, sagði hinn, fullt af dauðu fólki. Og fullt af skothylkjum.\u003cbr\u003e- Það er lífsmark með einum.\u003cbr\u003e- Og einn er úr lögreglunni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125805482312,"sku":"OSC-24077","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/24723.jpg?v=1754816772","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/loggan-sem-hlo-77304-24077","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}