{"product_id":"mannaferir-og-fornar-sloir-70605-60910","title":"Mannaferðir og fornar slóðir # 70605","description":"Mannaferðir og fornar slóðir. Magnús Björnsson á Syðra-Hóli tók saman og skrásetti.\u003cbr\u003eMagnús á Syðra-Hóli er enginn viðvaningur á ritvellinum þótt þetta sé fyrsta bók hans. Þrátt fyrir annasaman búskap í 40 ár og eril margvíslegra trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, hefur hann áður ritað marga sagnaþætti, sem birzt hafa í ritum og bókum undanfarin ár, en flesta er þá að finna í bókum Sögufélags Húnvetninga, \u003ci\u003eSvipum og sögnum I-IV\u003c\/i\u003e. Hafa þessi verk hans verðskuldað athygli og hlotið réttmætt lof dómbærustu manna.\u003cbr\u003eMagnús hefur til að bera marga kosti góðs fræðimanns og sagnaritara. Hann er vel menntaður maður, stálminnugur, vandvirkur og vandfísinn á heimildir, ættfræðingur ágætur og síðast en ekki sízt hefur hann yfir að ráða þeirri stílleikni og orðagnægð, að ritverk hans verða sannnefnd gullkista öllum þeim er íslenzkri tungu unna. (Káputexti).\u003cbr\u003eHér eru þættir af Séra Eggert Ólafsson Brím, Tvær ferðasögur: Farið í skóla ; Heim úr skóla, Frímann barnakennari, Jakob Frímannsson, Langt rekið, Guðmundur í Kollugerði, Guðmundur í Höskuldsstaðaseli, Bjarni á Strjúgi, Jón í Jeríkó, Helför Baldvins, Helga, Jón Kurfur, Friðrik stamari, Guðmundur skrifari og Sigríður á Haukagili.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121804738888,"sku":"OSC-60910","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70605.jpg?v=1754730696","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/mannaferir-og-fornar-sloir-70605-60910","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}