{"product_id":"mannlif-vi-sund-75098-64198","title":"Mannlíf við Sund # 75098","description":"Mannlíf við Sund. Býlið, byggðin og borgin. Þorgrímur Gestsson tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHófatak á mjúkri grund rauf þá kyrrð sem ríkt hafði frá öndverðu. Flokkur manna kom ríðandi austan að og stansaði á holtinu þar sem hæst bar. Mófuglar flögruðu upp en spöktust fljótt og settust aftur, óvanir mannaferðum. Fremst í flokknum riðu karl og kona, skartlega búin. Þau stigu af baki og horfðu yfir hrísi- og kjarrivaxna ásana og mýrarnar á nesinu sem teygði sig fyrir fótum þeirra vestur í flóann, í átt til hnígandi sólar, yfir eyjarnar á sundunum og til fjallanna sem blánuðu í norðri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞannig getum við reynt að sjá fyrir okkur hina fyrstu Reykvíkinga koma ofan um heiði, til nýrra heimkynna sinna sumarið 877 og stansa þar sem nú heitir Ártúnsholt: Ingólf Arnarson, Hallveigu Fróðadóttur, Helgu Arnardóttur, ekkju Hjörleifs fóstbróður hans, og fylgdarlið þeirra. Í kyrru veðri hafa þau séð gufumökk stíga frá miklum laugum í einni mýranna á nesinu norðanverðu, vestan undir lágum ási, og volgum læk sem hlykkjaðist um mýrina til sjávar. Allar götur síðan var þetta land kennt við laugarnar; mýrin lengst af nefnd Laugamýri, nú Laugardalur, holtið austan við hana Laugaholt, síðar Laugarás, og lækurinn Laugalækur. Á tanganum austan við víkina þar sem Ingólfur reisti bæ sinn, Laugarnestanga, var þegar á landnámstíð byggt býli sem einnig var kennt við laugarnar og nefnt Laugarnes.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121298768200,"sku":"OSC-64198","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/75098.jpg?v=1754719406","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/mannlif-vi-sund-75098-64198","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}