{"product_id":"maur-og-menning-51900-46936","title":"Maður og menning # 51900","description":"Maður og menning. Hugmyndasaga og kenningar mannfræðinnar. Eftir Harald Ólafsson.\u003cbr\u003eÍ þessari bók fjallað um skilning og skýringar á eðli manns og menningar frá sjónarhorni mannfræðinnar. Höfundur rekur þróun helstu hugmynda um manninn frá tíma upplýsingarstefnunnar til nútímans og setur hugmyndir mannfræðinnar í samhengi við almenna hugmyndasögu þjóðfélagsfræða og líffræða. Höfundur fer sínar eigin leiðir í túlkun klassískra fræðiverka á fræðasviðinu og byggir jöfnum höndum á þýskum, frönskum og engilsaxneskum frumheimildum. Viðfangsefnið er fjölbreytt, frá göldrum, trú og töfrum til veraldlegrar skynsemishyggju, frá fábrotnum siðum frummannsins til flókins nútímalegs þjóðskipulags.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaraldur Ólafsson stundaði nám í heimspeki við háskólann í Strassborg og París. Hann lauk einnig prófi í trúarbragðafræði og menningarlegri og líffræðilegri mannfræði frá háskólanum í Stokkhólmi og Uppsölum. Þá lauk hann Fil.lic.- prófi frá Stokkhólmsháskóla. Hann hefur kennt mannfræði, trúarbragðafræði og kenningar í félagsvísindum við Háskóla Íslands frá 1973, fyrst í námsbraut í þjóðfélagsfræðum og í félagsvísindadeild frá stofnun hennar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123999736136,"sku":"OSC-46936","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/51900.jpg?v=1754773796","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/maur-og-menning-51900-46936","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}