{"product_id":"maurinn-sem-sland-elskai-83586-64006","title":"Maðurinn sem Ísland elskaði # 90377","description":"\u003cp\u003eMaðurinn sem Ísland elskaði. Paul Gaimard og Íslandsferðir hans 1835-1836. Eftir Árna Snævarr.\u003cbr\u003ePaul Gaimard átti tvær heimsreisur að baki þegar hann kom eins og stormsveipur til Íslands sumrin 1835 og 1836. Hér stýrði hann mestu vísindaúttekt sem gerð hafði verið á þessari eyju sem fáir þekktu og lét teikna myndir sem gefa einstaka innsýn í lífið á Íslandi á þessum tíma. Gaimard vann hug og hjörtu landsmanna með því að læra íslensku og sýna þeim einlægan áhuga. En þrátt fyrir að hafa verið þekktur maður á sinni tíð eru bæði hann og leiðangrar hans að mestu gleymdir.\u003cbr\u003eÍ Maðurinn sem Ísland elskaði er saga þessara stórmerku leiðangra rakin og jafnframt sagt frá ævintýralegu lífshlaupi á tímum mælinga heimsins. Byggt er á ýmsum gögnum sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir áður, þar á meðal dagbókum Gaimards, og dregin upp ljóslifandi mynd af fólki, stöðum og heimssögunni á fyrri hluta nítjándu aldar. Um eitt hundrað myndir prýða bókina.\u003cbr\u003eÁrni Snævarr lærði sögu í Frakklandi og á Íslandi, stundaði blaðamennsku um árabil og hefur undanfarin ár unnið hjá alþjóðastofnunum og er nú búsettur í Brussel. Við vinnslu bókarinnar kannaði hann frönsk skjalasöfn og heimsótti helstu staði sem við sögu koma á Íslandi og í Frakklandi.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121312858440,"sku":"OSC-64006","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90377.jpg?v=1788951047","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/maurinn-sem-sland-elskai-83586-64006","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}