{"product_id":"mefisto-48886-44492","title":"Mefistó # 48886","description":"Mefistó. Saga af listamannsferli. Skáldsaga eftir Klaus Mann. Bríet Héðinsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.\u003cbr\u003eSkáldsagan Mefistó, sem segir frá starfsferli listamanns í alræðisríki, á sér sjálf sérkennilegan feril að baki. Hún kom fyrst út 1936 í Hollandi, enda sjálfkrafa bönnuð í heimalandi höfundar, Þýskalandi, þar sem hún birtist ekki fyrr en 20 árum seinna, og þá í Austur-Þýskalandi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSagan er eitt helsta bókmenntaverk þýskra útlaga á uppgangstímum nasista. Klaus Mann lýsir hér hvernig aðlögun og undirlægjuháttur plægir akurinn fyrir gerræði fasismans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVestur-þýskt forlag hugðist gefa söguna út 1963, en útgáfan var stöðvuð. Þetta varð upphaf frægustu málaferla í Þýskalandi eftir stríðslok vegna bókar. Þegar hún var svo loks gefin út í Vestur-Þýskalandi 1981 vakti hún strax feiknaathygli og hefur síðan selst í milljónaupplögum og verið þýdd á þriðja tug tungumála.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞýðandinn, Bríet Héðinsdóttir, gerir grein fyrir höfundinum og bókinni í ítarlegum eftirmála.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124227146056,"sku":"OSC-44492","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/48886.jpg?v=1754780492","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/mefisto-48886-44492","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}