{"product_id":"meistari-halfdan-69486-56565","title":"Meistari Hálfdan # 69486","description":"Meistari Hálfdan. Æfi- og aldarfarslýsing frá 18. öld eftir Jón Helgason Dr. Theol., biskup.\u003cbr\u003eHálfdan Einarsson (1732 – 1. febrúar 1785) var skólameistari í Hólaskóla í 30 ár, lengur en nokkur annar. Hann var sæmdur meistaranafnbót af Kaupmannahafnarháskóla 1765 og var eftir það yfirleitt kallaður Meistari Hálfdan.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHálfdan var sonur séra Einars Hálfdanarsonar á Prestbakka á Síðu og konu hans, Guðrúnar Sigurðardóttur. Hann varð stúdent frá Skálholtsskóla 1749 og lauk guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla vorið 1755, en hafði einnig lagt stund á nám í stærðfræði og eðlisfræði, auk fleiri greina. Hann varð skólameistari á Hólum árið 1755, 23 ára að aldri, og gegndi því starfi til dauðadags 1785.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHálfdan var vel lærður og þótti góður kennari en nokkuð drykkfelldur. Hann stundaði ritstörf og þýðingar meðfram kennslunni og þýddi meðal annars Konungsskuggsjá á dönsku og latínu, en hún var gefin út að tilstuðlan Ósýnilega félagsins árið 1768. Höfuðverk hans er þó bókmenntasaga Íslands, Sciagraphia Historiae Liteariae Islandicae, sem rituð var á latínu og kom út í Kaupmannahöfn 1777. Fyrir það var hann sæmdur þremur heiðursgullpeningum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKona Hálfdanar var Kristín, dóttir Gísla Magnússonar biskups á Hólum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122554798408,"sku":"OSC-56565","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/69486.jpg?v=1754745494","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/meistari-halfdan-69486-56565","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}