{"product_id":"meistari-jim-51818-39345","title":"Meistari Jim # 51818","description":"Meistari Jim. Skáldsaga eftir Joseph Conrad. Atli Magnússon íslenskaði.\u003cbr\u003eMeistari Jim er hann kallaður, maðurinn sem af skömm yfir því að hafa brugðist á hættustund er á flótta undan eigin orðspori. Að endingu yfirgefur hann heim hvíta mannsins og dregur sig í hlé á hitabeltiseyju í suðurhöfum. Þar verður hann herra hinna innfæddu, friðflytjandi og réttlátur stjórnandi. En þegar ráðist er inn í paradísina verður hann að nýju að taka afdrifaríka ákvörðun - hver verður hún?\u003cbr\u003eJoseph Conrad (1857-1924) hét upphaflega Jozef Teodor Konrad Korzeniowski og fæddist í rússneskum hluta Póllands, sonur landeigenda sem sendir voru í útlegð af rússneskum stjórnvöldum þar sem þeir létust meðan hann var enn barn að aldri. Sautján ára að aldri fór hann á sjó og næstu fimmtán árin sigldi hann um öll heimsins höf. Hann varð breskur ríkisborgari og hóf að skrifa sögur á ensku sem flestar byggja á reynslu hans af sjómennsku og nýlenduásælni Evrópulanda.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124931821896,"sku":"OSC-39345","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/42728.jpg?v=1754792570","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/meistari-jim-51818-39345","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}