{"product_id":"mig-hefur-dreymt-thetta-aur-37767-34924","title":"Mig hefur dreymt þetta áður # 37767","description":"Mig hefur dreymt þetta áður. Ljóð eftir Jóhann Hjálmarsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eMaíkvöld\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar ég sé mánann lágt á himni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003everður mér hugsað um margt sem framhjá ber\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrst sé ég hópa skordýra þeysa hjá í rómverskum stríðsvögnum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esíðan virðist máninn epli sem hefur verið bitið neðan af\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar næst er hann flótti heiðingjanna um ónumin landsvæði jarðarinnar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog loks er hann draumur húsanna um jólasnjó kerti og skraut\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebreytist\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evið hvert augnaráð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNú er hann að hverfa\u003cbr\u003e\u003cbr\u003einn í fjólubláar hallir skýjanna\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog förumaðurinn á ekkert eftir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003enema dálitla grautarslettu\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞá prjónar máninn eins og villtur gæðingur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog járnaðir hófar söngs hans skella á harðri stéttinni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMargar stúlkur týna silfurstreng æskunnar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMáninn siglir gegnum þungar öldur veraldarhafsins\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð hvítglóandi segl við hún\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHollendingurinn fljúgandi sem aldrei kemur að landi","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125269627208,"sku":"OSC-34924","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/37767.jpg?v=1754800692","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/mig-hefur-dreymt-thetta-aur-37767-34924","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}