{"product_id":"milli-fjalls-og-fjoru-87255-72227","title":"Milli fjalls og fjöru # 87255","description":"Milli fjalls og fjöru. Gamankvæði og tækifærisvísur eftir Jón Jens Kristjánsson, Ytri-Hjarðardal í Önundarfirði.\u003cbr\u003eJón Jens Kristjánsson í Ytri-Hjarðardal er héraðsskáld Önfirðinga. Um áratugaskeið orti Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld á Kirkjubóli í Bjarnardal sveinarannála en þegar hann var kominn fast að níræðu fól hann Jóni að taka við af sér. Það leynir sér ekki við lesturinn á þessu litla kveri að Guðmundur Ingi hefur vitað hvað hann söng þegar hann útnefndi þennan mann arftaka sinn og yngdi upp í embættinu um hátt í sextíu ár. Jón er léttur og leikandi í kveðskap sínum, fundvís á hið spaugilega ig laginn við að fella það í formið nánast eins og fyrirhafnarlaust.\u003cbr\u003eNokkrir vinir Jóns Jens Kristjánssonar beittu sér fyrir því að ljóðmæli hans kæmust á prent. Óháð tilefni eru bragir hans og vísur ljúfmeti fyrir þá sem unna góðum kveðskap, íslensku máli og græskulausu gamni. (Káputexti).","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440438374728,"sku":"OSC-72227","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87254.jpg?v=1770473190","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/milli-fjalls-og-fjoru-87255-72227","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}