{"product_id":"minningabok-58399-23417","title":"Minningabók # 58399","description":"Þorvaldur Thoroddsen, minningabók.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMinnigabók Þorvaldar Thoroddsen urðu aldrei nema tvö bindi. Æskuár - Kennslustörf og rannsóknir á Íslandi 1880-1898.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrstu skemtiferðina fór eg upp í Borgarfjörð 1871, þá bjó Páll Blöndal á Hvítárvöllum.\u003cbr\u003eEg varð honum samferða úr Reykjavík um kvöldið 1. júlí kl. 11, og lentum\u003cbr\u003evið í stórum skólapiltahóp, sem var á heimleið. Var mjög svakksamt á ferðinni, eins\u003cbr\u003eog þá var títt, og gekk ferðalagið skrykkjótt, bæði af því að sumir voru svínkaðir, er\u003cbr\u003eþeir fóru á stað, og flestir þurftu að staupa sig á leiðinni. Einn varð að skilja eftir í\u003cbr\u003eReiðskarði hjá Ártúni, hann komst ei lengra, og með honum annan mann sem færari\u003cbr\u003evar. Nokkuð var áð og sofið við Svínaskarð, og þar týndust allir hestarnir, en fundust\u003cbr\u003eþó fljótt aftur uppi á skarði. Á Möðruvöllum var aftur áð, etið skyr og drukkið fast,\u003cbr\u003eenda var pytlan sífelt á lofti, meðan eitthvað var til. Síðan riðum við sem leið liggur\u003cbr\u003ekringum Hvalfjörð, fengum enga fjöru*), en húðarigningu í klungrunum og klifunum\u003cbr\u003efyrir Þyril, og urðum holdvotir, því verjur voru engar að gagni, reiðskapur var mjög í\u003cbr\u003eólagi hjá mörgum, gjarðir og ólar alltaf að slitna og hestarnir mjög misjafnir. Eg\u003cbr\u003ebragðaði þá aldrei vínföng, aldrei meðan eg var í skóla, og tók ekki þátt í víngleði\u003cbr\u003ehinna, var votur og mjög syfjaður, og átti illt með að hanga á hestinum, dottandi við\u003cbr\u003eog við. Að þessu svalki vorum við allan daginn 2. júlí og til kl. 2 næstu nótt, þá\u003cbr\u003ekomumst við loks að Hvítárvöllum, höfðum skilið við hina á Hesthásli.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125917581640,"sku":"OSC-23417","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/23951.jpg?v=1754817874","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/minningabok-58399-23417","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}