{"product_id":"minningabok-magnusar-fririkssonar-staarfelli-69933-60529","title":"Minningabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli # 69933","description":"Minningabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli. Magnús á Staðarfelli segir frá. Inngangur eftir Þorstein Þorsteinsson. Gestur Magnússon bjó til prentunar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorsteinn Þorsteinsson fyrrum\u003cbr\u003esýslumaður ritar Inngang\u003cbr\u003eað Minningabók Magnúsar á Staðarfelli, og skulum við sem\u003cbr\u003esnöggvast gefa honum orðið\u003cbr\u003eum störf Magnúsar Friðrikssonar:\u003cbr\u003e„Magnús var forgöngumaður\u003cbr\u003eum langt skeið í verzlunar- og búnaðarmálum. Hann\u003cbr\u003evar einn af stofnendum Verzlunarfélags\u003cbr\u003eDalasýslu 1886 og\u003cbr\u003evar lengstum í stjórn þess,\u003cbr\u003emeðan það var við lýði, og\u003cbr\u003estóð framarlega í samgöngumálum héraðsins. Í búnaðarmálum\u003cbr\u003estóð hann jafnan\u003cbr\u003efremstur í flokki. Undir eins\u003cbr\u003eog hreppsbúnaðarfélög voru\u003cbr\u003estofnuð, gjörðist hann hvatamaður\u003cbr\u003eþess, að búnaðarfélag\u003cbr\u003eværi stofnað í hans hreppi, og\u003cbr\u003eþegar búnaðarsamband var\u003cbr\u003estofnað fyrir Dala- og Snæfellsnessýslu\u003cbr\u003e1914, var hann\u003cbr\u003eeinn stofnendanna. Á næsta\u003cbr\u003eári varð hann formaður þess\u003cbr\u003eog var það óslitið um næsta\u003cbr\u003eþrjátíu ára bil. Stýrði hann\u003cbr\u003eþá sjálfur allri ræktun, en\u003cbr\u003eBúnaðarsamband Dala- og\u003cbr\u003eSnæfellsnessýslu stóð fyrir í\u003cbr\u003eþeim sýslum, lagði á ráðin\u003cbr\u003eum, hvernig jarðabótum þeim\u003cbr\u003eskyldj hagað og útvegaði\u003cbr\u003estarfskrafta til þeirra, menn\u003cbr\u003ehesta og síðar vélar. Búnaðarþingmaður\u003cbr\u003evar Magnús um\u003cbr\u003enær 30 ára skeið (1914—42).\u003cbr\u003eHann skrifaði mjög fróðlega\u003cbr\u003eritgjörð um sögu, vöxt og\u003cbr\u003eviðgang búnaðarfélagsskaparins\u003cbr\u003eí Dölum og á Snæfellsnesi\u003cbr\u003efram undir lok 4. tugar\u003cbr\u003eþessarar aldar. \"","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121887936840,"sku":"OSC-60529","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/69933.jpg?v=1754731966","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/minningabok-magnusar-fririkssonar-staarfelli-69933-60529","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}