{"product_id":"minningar-fra-london-og-paris-46106-42168","title":"Minningar frá London og París # 46106","description":"Minningar frá London og París. Eftir Frímann B. Arngrímsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNokkur minningarorð um Frímann B. Arngrímsson eftir Geir Jónasson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFrímann Bjarnason Arngrímsson fæddist í Hörgárdal 1855, sonur Bjarna Arngrímssonar (prests að Bægisá), og fluttist til Vesturheims 1874 með fyrsta stóra hópnum af Norðurlandi 1874. Hann aflaði sér háskólamenntunar einna fyrstur Vestur-Íslendinga, og vann að kennslu og margskonar framfaramálum í Kanada. Meðal annars stofnaði hann blaðið Heimskringlu í Winnipeg 1886, og var hvatamaður bæði að stofnun íslensks menntaskóla og að stuðningi við Ísland sem á dundu ýmis áföll á þessum árum. Fljótlega lenti Frímann í deilum við suma aðra forystumenn Vestur-Íslendinga, gekk úr útgáfu Heimskringlu, og fór frá Winnipeg um jól 1888. Hafði hann hug á framhaldsnámi við háskóla í Bandaríkjunum og hafnaði í Massachusetts, eftir nokkur ferðalög. Þar vann hann í fyrstu við kennslu, m.a. í málaskóla, en síðar á rannsóknastofum M.I.T. og a.m.k. tvö ár í raftækjaverksmiðjum. Þarna fékk hann mikinn áhuga á að koma til leiðar rafvæðingu Íslands með “hvítu kolunum” sem hann kallaði svo, þ.e. vatnsafli. Kom Frímann hingað tvær ferðir þeirra erinda, 1894-95, en talaði fyrir daufum eyrum flestra. Aldarfjórðungs bið varð á því að virkjun vatnsfalla hæfist að ráði á Íslandi. Vildi Frímann kenna lítinn árangur sinn því að hann stóð einn, fátækur og ættlítill, gegn íhaldssemi landa sinna og hagsmunum kolakaupmanna, en einnig er greinilegt af heimildum að áætlanir hans þóttu jafnvel bjartsýnustu mönnum óraunsæjar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEftir störf á rannsóknastofum í Bretlandi í hálft þriðja ár fluttist Frímann slyppur og snauður til Parísar snemmsumars 1897. Þar vann hann síðan fyrir sér með ritstörfum, kennslu, fornbókasölu og byggingavinnu, og naut við það góðrar málakunnáttu sinnar. Í frístundum grúskaði hann í heimspeki, bókmenntum og trúarbrögðum, og skrifaði bréf til ýmissa Íslendinga sem hann þekkti eða taldi geta stutt sig. Mörg voru lítið annað en skammir um þá sem ekki tóku undir tillögur hans 1894-95, en einnig bendir hann þar á ýmis framfaramál fyrir Ísland og býður fram krafta sína til að vinna að þeim.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124783841608,"sku":"OSC-42168","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/46106.jpg?v=1754786319","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/minningar-fra-london-og-paris-46106-42168","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}