{"product_id":"minningar-huldu-stefansdottur-i-iv-54590-49156","title":"Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur I-IV # 54590","description":"Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur. Handrit búið til prentunar Hjörtur Pálsson.\u003cbr\u003eHulda fæddist þann 1. janúar 1897 á Möðruvöllum í Hörgárdal, dóttir hjónanna Stefáns Stefánssonar kennara og Steinunnar Frímannsdóttur. Hún lauk gagnfræðaprófi á Akureyri árið 1912 og næstu ár stundaði hún tungumálanám og handavinnu þar í bæ. Hún lauk prófi frá húsmæðraskólanum í Vording borg í Danmörku árið 1916. Þá nam Hulda píanóleik og tónfræði í Tónlistarskóla Matthisson Hansen í Kaupmannahöfn 1916-1917 og var þar við framhaldsnám 1919-1921. Hún var stundakennari í dönsku við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1921-1923 og kenndi einnig píanóleik þessi ár. Frá 1932-1937 var hún skólastjóri kvennaskólans á Blönduósi og aftur árin 1953-1967. Hún var skólastjóri Húsmæðraskóla Reykjavíkur frá stofnun hans árið 1941 og til ársins 1953. Árið 1954 var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og stórriddarakrossi orðunnar árið 1969.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHulda var organleikari Þingeyrakirkju í 15 ár og átti þátt í stofnun kvenfélags Sveinsstaðahrepps árið 1928 og var í stjórn þess í 15 ár. Þá var hún í stjórn Sambands norðlenskra kvenna og formaður þess 1960-1964.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123784253768,"sku":"OSC-49156","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/54590.jpg?v=1754767094","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/minningar-huldu-stefansdottur-i-iv-54590-49156","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}