{"product_id":"misjafn-saudur-i-morgu-fe-87972-50340","title":"Misjafn sauður í mörgu fé # 87972","description":"Misjafn sauður í mörgu fé. Lítið sögurit um margt eftirtektavert. Höfundur Eiríkur Ólafsson í Reykjavík, áður fyrri á Brúnum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEiríkur Ólafsson á Brúnum var íslenskur bóndi og mormóni. Hann er frægastur fyrir ferðasögur sínar og sagnaþætti sem út komu í einni bók um miðja 20. öld. Eiríkur á Brúnum er fyrirmynd Halldórs Laxness að Steinari í Hlíðum undir Steinahlíðum í skáldsögu hans Paradísarheimt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEiríkur bjó að Brúnum undir Eyjafjöllum í 23 ár. Á síðustu búskaparárum sínum, árið 1876, tók hann sér ferð á hendur til Kaupmannahafnar til að skoða sig um og ef til vill jafnframt til að hitta góðhest sem Valdimar prins hafði fengið hjá honum þegar hann var hér á ferð í fylgd með konunginum föður sínum tveimur árum áður. Eiríkur fluttist að Ártúnum í Mosfellssveit árið 1887. Þar tók hann mormónatrú og fór til Utah í Bandaríkjunum árið 1881 og var þar í 8 ár. Var hann þá einu sinni sendur hingað heim til trúboðs og var þá illa tekið. Eiríkur sagði skilið við mormónatrú árið 1889 og fluttist þá heim til Íslands og lést í Reykjavík árið 1900.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440310153544,"sku":"OSC-50340","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/59598a.jpg?v=1770471517","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/misjafn-saudur-i-morgu-fe-87972-50340","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}