{"product_id":"mivikudagar-i-moskvu-84275-43219","title":"Miðvikudagar í Moskvu # 84275","description":"Miðvikudagar í Moskvu. Árni Bergmann segir frá.\u003cbr\u003eEnginn Íslendingur hefur kynnst sovésku samfélagi eins náið og Árni Bergmann. Hann fór ungur til háskólanáms í Moskvu og dvaldist þar um margra ára skeið. Námsár hans í Moskvu voru einn merkilegasti umbrotatími í sögu Ráðstjórnarríkjanna eftir stríð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta er tímabil leyniræðu Krústjoffs og fyrstu bóka Solzenitsíns - tími bjartra vona um að Sovétríkjunum tækist að leysa sig úr viðjum Stalínismans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrni kristallar lífsviðhorf þeirrar kynslóðar sem mótaðist við þessar aðstæður, vonir hennar, og ekki síður vonbrigðin þegar á leið. Við kynnumst hér litríku mannlífi, listamönnum og stúdentum, andófsmönnum jafnt sem jábræðrum skipulagsins og þá ekki síst því hvunndagsfólki sem ekki verður flokkað á þennan hátt. Í frásögnum af þessu fólki má greina örlagasögu sovésku þjóðanna á tuttugustu öld. Árni Bergmann hefur um nokkurt skeið lagt fram mikilvægan skerf í menningar- og þjóðfélagsumræðu hérlendis. Í krafti margþættrar reynslu sinnar og víðtækjrar þekkingar hefur honum tekist að þoka þeim umræðum úr lágkúru og einhæfni til víðsýnni og margþættari viðhorfa.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124523270472,"sku":"OSC-43219","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/47348.jpg?v=1754783779","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/mivikudagar-i-moskvu-84275-43219","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}