{"product_id":"myvatnssveit-me-kostum-og-kynjum-44088-40465","title":"Mývatnssveit með kostum og kynjum # 44088","description":"Árbók Ferðafélags Íslands 2006. Mývatnssveit með kostum og kynjum. Eftir Jón Gauta Jónsson. Ljósmyndir Jóhann Óli Hilmarsson og fleiri.\u003cbr\u003eÁrbók FÍ 2006 fjallar um Mývatnsssveit og næsta umhverfi hennar, með öllum kostum og kynjum. Höfundur, Jón Gauti Jónsson, landfræðingur, tekur lesandann með sér í ferðalag um sveitina, ofan af Mývatnsheiði og niður að bæjunum við Laxá, síðan fram á Suðurbæi áður en förinni er haldið áfram meðfram vatninu sunnan og austan þess.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKomið er í hlað á hverjum bæ og staldrað við, lengi þar sem ferðamönnum býðst beini og gisting eins og á Skútustöðum og í Reykjahlíð. Síðan er haldið með bæjum norðan vatns og hringnum lokað við Laxá. Eftir að hafa skoðað byggðina er haldið upp á heiðar, fjöll, hraun og sanda umhverfis alla sveit. Komið að Kröflu, brölt í Búrfellshrauni, litið á Lúdent, haldið á Heilagsdal, farið um Fremrináma, skotist í Sellönd og Suðurárbotna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUm leið og landinu er lýst er haldið á vit sögu og sagna, sögð deili á fólki, lífsbaráttu þess og lifnaðarháttum, en einnig hugað að náttúrunni sem óvíða í landinu er eins fjölbreytt og við Mývatn: fjöld fugla, fiskur í vatni, mýflugan í senn vargur og lífhlekkur. Kynnt er Náttúrurannsóknastöðin og fluttur fróðleikur vísindamanna um lífríkið. Margt er tíundað um jarðfræði og það hvernig ásýnd landsins hefur orðið til.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur mynda er Jóhann Óli Hilmarsson og staðfræðikort gerir Guðmundur Ó. Ingvarsson. Ritstjóri var Hjalti Kristgeirsson.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124876968264,"sku":"OSC-40465","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44088.jpg?v=1754790292","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/myvatnssveit-me-kostum-og-kynjum-44088-40465","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}