{"product_id":"naarkraftur-45394-41569","title":"Náðarkraftur # 45394","description":"Náðarkraftur. Skáldsaga eftir Guðmund Andra Thorsson.\u003cbr\u003eGott eintak, áritað af hæstvirtum þingmanni Guðmundi Andra Thorssyni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNáðarkraftur er fjölskyldusaga. Sonurinn á heimilinu þarf að segja foreldrum sínum frá því að lag eftir hann hafi komist í lokaumferð Eurovision-keppninnar - sem hann veit að mun hryggja þau - og dóttirin þarf að gera upp hug sinn um það hvort hún eigi að yfirgefa mannsefnið sitt, ungan og efnilegan Evrópusinna, fyrir sænskan blúsara sem hún veit ekki að er erfingi að miklum auði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMóðirin er prestur sem glímir við það að skyggnigáfan úr bernsku tekur sig upp, en faðirinn er fyrrverandi þingmaður sósíalista sem nú ræktar garðinn sinn, skrifar sakamálasögur - og málar. Álengdar standa tveir jaxlar, einhleypur útvarpsþulur sem orðinn er hluti af fjölskyldunni og afinn sem er ættgöfugur kommúnisti. Þau eru síðustu sósíalistarnir, hugsjónir þeirra eru almennt aðhlátursefni og yfir þeim hvílir skuggi brostinna drauma. Samt safnast þau saman við píanóið á kvöldin ...\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNáðarkraftur er hrífandi skáldsaga eftir Guðmund Andra Thorsson, og skrifuð af fágætri stílgáfu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124815692104,"sku":"OSC-41569","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/45394.jpg?v=1754787792","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/naarkraftur-45394-41569","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}