{"product_id":"nauga-fruin-i-ruzomberok-78534-29216","title":"Náðuga frúin í Ruzomberok # 78534","description":"Náðuga frúin frá Ruzomberok ­ æviminningar Laufeyjar Einarsdóttur er eftir Jónas Jónasson, rithöfund og útvarpsmann.\u003cbr\u003eLaufey var í rómuðum fimleikaflokki ÍR, sem vakti mikla athygli á Norðurlöndum, Bretlandi og Frakklandi um 1930. Hún var á Ólympíuleikunum í Berlín 1936 og á heimleið með Brúarfossi frá Kaupmannahöfn hitti hún mannsefni sitt, Tékkann Jan Jedlicka. Árið 1938 hélt hún til Ruzomberok í Tékkóslóvakíu og giftist honum. Heimsstyrjöldin síðari skall á og nasistar réðust inn í hið nýja fósturland Laufeyjar. Evrópa stóð í ljósum logum. Í september 1944 náðu skæruliðar kommúnista Ruzomberok á sitt vald og hundruð manna voru handtekin, þeirra á meðal Jan. Í maí 1945 lauk síðari heimsstyrjöldinni og nýir herrar komust til valda í Tékkóslóvakíu. Laufey var handtekin og send í fangabúðir í Krupina.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125510308168,"sku":"OSC-29216","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/30982.jpg?v=1754809679","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/nauga-fruin-i-ruzomberok-78534-29216","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}