{"product_id":"navigi-vi-folki-a-jorinni-70824-61051","title":"Í návígi við fólkið á jörðinni # 70824","description":"Í návígi við fólkið á jörðinni. Eftir Þóri Guðmundsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ návígi við fólkið á jörðinni segir frá venjulegu fólki í óvenjulegum og stundum ótrúlegum aðstæðum. Bændum í Kína og Bangladess sem berjast við náttúruöflin, heiðarlegu fólki sem tekst á við afleiðingar styrjalda, bláfátækum viðskiptafrömuðum í Afríku, kaupmönnum á iðandi strætum stórborga á Indlandsskaga, dugmiklum konum og vingjarnlegum lögregluforingjum í gömlu Sovétríkjunum og fólki sem elst upp við múra hvort sem þeir eru manngerðir eða huglægir. Bókin segir líka frá fólki sem hefur óverjandi ógnarverk á samviskunni. Fólkið sem Þórir kynnist hefur ótrúlegan styrk þrátt fyrir hrikalegar aðstæður. Hann hittir fólk sem mætir örlögum sínum af jafnaðargeði, berst gegn ofurvaldinu og er staðráðið í að fara með sigur af hólmi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞórir Guðmundsson hefur brennandi áhuga á fólki. Hann hefur starfað víða um heim við hjálparstörf á vegum Rauða krossins, oft á átaka- og hamfarasvæðum. Hann hefur einnig sem fréttamaður flakkað heimshorna á milli í áratugi og flutt fregnir af alþjóðamálum. Á bak við fréttirnar er fólk og hjálparstarf snýst um að hjálpa fólki. Við störf sín hefur Þórir kynnst fólki bæði í höllum og fátækrahverfum, sem býr við velmegun og er við hungurmörk. Í þessari bók segir hann eftirminnilegar sögur þessa fólks, fólksins á jörðinni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121785602376,"sku":"OSC-61051","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70824.jpg?v=1754730279","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/navigi-vi-folki-a-jorinni-70824-61051","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}