{"product_id":"new-york-62796-55385","title":"New York # 62796","description":"New York. Kvæði eftir Kristján Karlsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristján Karlsson fæddist þann 26. janúar 1922 að Eyvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 lagði hann stund á nám í enskum bókmenntum við University of Berkeley í Kaliforníu og lauk þaðan B.A.-prófi 1945. Hann hélt til New York í framhaldsnám við Columbia University og lauk þaðan M.A.-prófi í samanburðarbókmenntum 1947.\u003cbr\u003eKristján hefur fengist við ljóðasmíð, smásagnagerð og greinaskrif auk þýðinga. Hann hefur ennfremur ritstýrt fjölda bóka. Hann stóð að ýmiss konar útgáfum áður en hann sendi frá sér ljóðabókina Kvæði árið 1976. Hann hlaut Davíðspennann 1991 fyrir ljóðabókina Kvæði 90 og viðurkenningu Rithöfundarsjóðs Ríkisútvarpsins ári síðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eFornsalinn Henderson á Tenth Ave liggur fyrir dauðanum\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg sakna einskins en ég veit\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehvað aftur skeður hér í sveit\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSeg engum hvort ég hafi gert\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeitt handarvik sem um er vert,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað hérna barðist Henderson\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð horfna skranbúð leynda von\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003enú molna húsin oní urð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð opna rifu i hverri hurð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog frálaus rör sem fara i kaup\u003cbr\u003evið frelsisstríðsins byssuhlaup.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122751504712,"sku":"OSC-55385","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62796.jpg?v=1754749331","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/new-york-62796-55385","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}