{"product_id":"niels-ebbesen-22320-22052","title":"Niels Ebbesen # 22320","description":"Niels Ebbesen. Sjónleikur í fimm þáttum eftir Kaj Munk. Jón Eyþórsson sneri á íslenzku.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e1943 stjórnaði Haraldur Björnsson flutningi á hinu umdeilda leikriti Kaj Munks, Niels Ebbesen, sem hernámsstjórn Þjóðverja hafði gert upptækt í Danmörku. Útsending á verkinu, í þýðingu Jóns Eyþórssonar, var því um leið frumflutningur þess.\u003cbr\u003eHandritinu var\u003cbr\u003esmyglað til íslands og\u003cbr\u003everkið flutt i fyrsta sinn\u003cbr\u003ehér í apríl 1943. Slíkar\u003cbr\u003evoru vinsældir þess, að\u003cbr\u003eþað var endurtekið í júní\u003cbr\u003esama ár, og loks voru\u003cbr\u003efluttir kaflar úr því. í\u003cbr\u003eminningardagskrá um\u003cbr\u003eKaj Munk í janúar 1944.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e„Niels Ebbesen\" fjallar um baráttu Dana gegn\u003cbr\u003eþýzkum riddurum á 14.\u003cbr\u003eöld. Foringi Þjóðverja er\u003cbr\u003eGert, „sköllótti greifinn\",\u003cbr\u003eribbaldi mikill, sem\u003cbr\u003eeinskis svífst í valdagræðgi sinni. Telja margir, að Hitler og enginn\u003cbr\u003eannar sé fyrirmynd\u003cbr\u003ehöfundar að þeirri persónu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKaj Munk fæddist í\u003cbr\u003eMaribo á Lálandi 1898.\u003cbr\u003eHann nam guófræði og\u003cbr\u003evarð prestur í Vedersö á\u003cbr\u003eJótlandi. Framan af ævi\u003cbr\u003evar Munk ekki frábitinn\u003cbr\u003eeinræðisstjórn, en innrás Ítala í Eþíópíu og þó\u003cbr\u003eeinkum Gyðingaofsóknir\u003cbr\u003eHitlers opnuðu augu\u003cbr\u003ehans og hann barðist hatrammlega\u003cbr\u003egegn nasistum\u003cbr\u003eá hernámsárunum, bæði i\u003cbr\u003eræðu og riti. Að lokum\u003cbr\u003emyrtu þýzku böðlarnir\u003cbr\u003eh a n n í janúar 1944.\u003cbr\u003eMunk fór að skrifa leikrit\u003cbr\u003eá skólaárunum og var\u003cbr\u003eí fyrstu undir áhrifum\u003cbr\u003efrá Pirandello og expressjónistum,\u003cbr\u003een tók siðan\u003cbr\u003esöguleg og þjóðfélagsleg\u003cbr\u003eviðfangsefni til meðferðar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126045704520,"sku":"OSC-22052","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/22320.jpg?v=1754820286","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/niels-ebbesen-22320-22052","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}