{"product_id":"niels-ebbesen-36431-33735","title":"Niels Ebbesen # 36431","description":"Niels Ebbesen. Sjónleikur í fimm þáttum eftir Kaj Munk. Jón Eyþórsson sneri á íslenzku.\u003cbr\u003e1943 stjórnaði Haraldur Björnsson flutningi á hinu umdeilda leikriti Kaj Munks, Niels Ebbesen, sem hernámsstjórn Þjóðverja hafði gert upptækt í Danmörku. Útsending á verkinu, í þýðingu Jóns Eyþórssonar, var því um leið frumflutningur þess.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHandritinu var smyglað til íslands og verkið flutt i fyrsta sinn hér í apríl 1943. Slíkar voru vinsældir þess, að það var endurtekið í júní sama ár, og loks voru fluttir kaflar úr því. í minningardagskrá um Kaj Munk í janúar 1944.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e„Niels Ebbesen\" fjallar um baráttu Dana gegn þýzkum riddurum á 14. öld. Foringi Þjóðverja er Gert, „sköllótti greifinn\", ribbaldi mikill, sem einskis svífst í valdagræðgi sinni. Telja margir, að Hitler og enginn annar sé fyrirmynd höfundar að þeirri persónu.\u003cbr\u003eKaj Munk fæddist í Maribo á Lálandi 1898. Hann nam guófræði og varð prestur í Vedersö á Jótlandi. Framan af ævi var Munk ekki frábitinn einræðisstjórn, en innrás Ítala í Eþíópíu og þó einkum Gyðingaofsóknir Hitlers opnuðu augu hans og hann barðist hatrammlega gegn nasistum á hernámsárunum, bæði i ræðu og riti. Að lokum myrtu þýzku böðlarnir hann í janúar 1944. Munk fór að skrifa leikrit á skólaárunum og var í fyrstu undir áhrifum frá Pirandello og expressjónistum, en tók siðan söguleg og þjóðfélagsleg viðfangsefni til meðferðar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125356953928,"sku":"OSC-33735","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/36431.jpg?v=1754802736","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/niels-ebbesen-36431-33735","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}