{"product_id":"nokkur-kvaei-og-visur-25826-15848","title":"Nokkur kvæði og vísur # 25826","description":"Nokkur kvæði og vísur eftir Sigurð Norland.\u003cbr\u003eÞetta er eina bók Sigurðar Norland.\u003cbr\u003eSigurður Norland (16. mars 1885 – 27. maí 1971) frá Hindisvík á Vatnsnesi var frumkvöðull í náttúruvernd á Íslandi. Hann var prestur í Tjarnarprestakalli en kaus að búa í Hindisvík frekar en sitja pestsetrið Tjörn. Sigurður var mikill áhugamaður um verndun sela og hvala og lét árið 1940 vernda selalátrið í Hindisvík. Sigurður var áhugamaður um hrossarækt og kom upp og ræktaði Hindisvíkurkyn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1907 og sigldi til Skotlands og var þar um tíma. Þaðan fór hann til Íslendingabyggða í Kanada og dvaldi um hríð í Danmörku á heimleiðinni. Hann fór svo í Prestaskólann og var síðasti kandidatinn sem útskrifaðist þaðan. Sigurður var svo vígður sem aðstoðarprestur á Vopnafirði og dvaldi þar í eitt ár eða þangað til hann fékk Tjarnarprestakall á Vatnsnesi. Hann bjó í Hindisvík hjá móður sinni en keypti svo jörðina á uppboði árið 1919 þegar móðir hans hætti búskap. Frá 1919 var Sigurður í nokkur ár prestur á Bergþórshvoli en sótti svo aftur um Tjarnarprestakall og var þar prestur til 1955.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurður vildi að í Hindisvík risi þéttbýli með útgerð og umskipunarhöfn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSiguður var mikill tungumálamaður og hagyrðingur. Hann lauk árið 1959 B.A. prófi í grísku frá Háskóla Íslands, þá 74 ára að aldri. Sigurður bjó í Hindisvík til æviloka. Hann var ókvæntur og barnlaus.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126584410440,"sku":"OSC-15848","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/61364_6a0443b3-7e82-42ab-9b24-170d85694050.jpg?v=1754829577","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/nokkur-kvaei-og-visur-25826-15848","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}