{"product_id":"ny-logfraeisleg-formalabok-56557-50798","title":"Ný lögfræðisleg formálabók # 56557","description":"Ný lögfræðisleg formálabók eftir Einar Arnórsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar Arnórsson var fæddur að Minna-Mosfelli í Grímsnesi 1880. Foreldrar hans voru Arnór Jónsson bóndi þar og kona hans Guðrún Þorgilsdóttir húsmóðir. Hann kvæntist 1907 Sigríði Þorláksdóttir Johnson húsmóðir. Börn þeirra voru: Ingibjörg, Guðrún, Áslaug, Ásgerður, Hrafnhildur og Logi. Einar lauk stúdentspróf 1901. Lagði fyrst stund á norræna málfræði við Hafnarháskóla, en hvarf frá því. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1906. Yfirréttarmálaflutningsmaður 1907. Hæstaréttarlögmaður 1945. Heiðursdoktor í lögum Háskóla Íslands 1936.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKennari við Lagaskólann í Reykjavík 1908— 1911. Prófessor í lögum við Háskóla Íslands 1911—1915. Skipaður 4. maí 1915 ráðherra Íslands, lausn 4. jan. 1917. Varð þá að nýju prófessor í lögum og gegndi því embætti til 1932, enda þótt hann fengi lausn í okt. 1919 og væri stjórnmálaritstjóri Morgunblaðsins og Ísafoldar veturinn 1919—1920. Rektor Háskóla Íslands 1918—1919 og 1929—1930. Jafnframt var hann skattstjóri í Reykjavík 1922—1928 og formaður niðurjöfnunarnefndar, sat í nefndinni til 1932. Hæstaréttardómari 1932—1942. Skipaður 16. des. 1942 dóms- og menntamálaráðherra, lausn 16. sept. 1944, en falið að gegna störfum áfram um stundarsakir, fékk lausn 21. sept. Hæstaréttardómari 1944—1945.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKosinn í velferðarnefnd 1914. Átti sæti í fullveldisnefnd Alþingis 1917—1918. Átti og sæti í sambandslaganefnd 1918 og síðan dansk-íslenskri ráðgjafarnefnd til 1934. Skipaður 1927 í matsnefnd á Landsbankann. Vann 1925 ásamt Hannesi Þorsteinssyni að rannsókn íslenskra skjala í ríkisskjalasafni Dana og samningum um afhendingu þeirra til Íslands. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1930—1932. Skipaður 1934 í nefnd til þess að undirbúa nýja réttarfarslöggjöf. Forseti Sögufélagsins 1935—1955. Átti sæti í Árnasafnsnefnd 1936—1942.\u003cbr\u003eAlþingismaður Árnnesinga 1914—1919 , alþingismaður Reykjavíkur 1931—1932 . Ráðherra Íslands 1915—1917, dóms- og menntamálaráðherra 1942—1944.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAfkastamikill rithöfundur og samdi fjölda rita og greina um lögfræði, sögu Íslendinga o. fl. Helstu rit hans eru: Réttarstaða Íslands. Meðferð opinberra mála. Þjóðréttarsamband Íslands og Danmerkur. Réttarsaga Alþingis. Þjóðabandalagið. Alþingi og frelsisbaráttan 1845—1874. Árnesþing á landnáms- og söguöld. Annaðist útgáfu Alþingisbóka og fleiri merkra heimildarrita um íslensk lög og dóma o. fl.\u003cbr\u003eHann var ritstýrði Fjallkonunni 1907. Ísafold 1919—1920. Morgunblaðinu 1919—1920. Skírni 1930. Blöndu 1936—1939. Söga 1950—1954. Tímariti lögfræðinga 1951—1953.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123426623816,"sku":"OSC-50798","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/56557.jpg?v=1754762321","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ny-logfraeisleg-formalabok-56557-50798","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}