{"product_id":"nyja-testamenti-odds-gottskalkssonar-77552-65845","title":"Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar # 77552","description":"Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar. Oddur Gottskálksson útlagði á norrænu. Sigurbjörn Einarsson, Guðrún Kvaran, Gunnlaugur Ingólfsson og Jón Aðalsteinn Jónsson rituðu inngang.\u003cbr\u003eNýja testamenti Odds Gottskálkssonar er fyrsta bók sem prentuð var á íslenska tungu. Prentun bókarinnar lauk 12. apríl 1540 í Hróarskeldu, Danmörku. Bókin er um 330 blöð og í litlu broti eða 8vo. Ekki er vitað hve mörg eintök voru prentuð en talið er líklegt að Oddur hafi ætlað sérhverjum presti á Íslandi eintak.\u003cbr\u003eFræðimenn hafa löngum hrósað þýðingu Odds á Nýja testamenntinu fyrir það kjarnyrta mál sem Oddur notar og benda á að hann hafi lagt grunninn að þeim stíl sem enn er viðhafður í biblíuþýðingum. Margir hafa þó bent á að hann eigi oft í brösum við að mynda íslenskulegar setningar og að hann riti ekki hreint mál. Sigurður Nordal kallaði samt þýðinguna „eitt af leiðarmerkjunum í sögu íslenskra bókmennta“. Hann taldi stíl hans „svo svipmikinn og mergjaðan og mál hans svo auðugt, að enn er unun að lesa guðspjöllin í þeim búningi“. Dr. Jón Helgason prófessor tók ekki eins djúpt í árinni. Þó taldi hann stíl Odds „maklegan þeirra lofsyrða - ef litið er á þá kafla, sem best hafa tekist“.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121071063368,"sku":"OSC-65845","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77552.jpg?v=1754713805","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/nyja-testamenti-odds-gottskalkssonar-77552-65845","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}