{"product_id":"nytt-folk-49139-44655","title":"Nýtt fólk # 49139","description":"Nýtt fólk. Þjóðerni og verkalýðsstjórnmál 1901-1944. Eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur.\u003cbr\u003eMyndun íslensks þjóðríkis var fyrirferðamesta viðfangsefni stjórnmálanna á upphafsárum verkalýðshreyfingarinnar. Takmarkaði það svigrúm hennar á stjórnmálasviðinu, eða jók það slagkraft hennar? Hvernig mótaði orðræða sjálfstæðisbaráttunnar sjálfsmynd íslensks verkafólks? Að hvaða marki streittist það á móti eða hafði áhrif á þróun íslenskrar þjóðernisstefnu? Hvernig tengdist tjórnmálaorðræða verkalýðsflokkanna, sem að stofninum til var sósíalísk, og þjóðernisorðræðan? Hvaða hlutverki gegndu verkalýðsflokkarnir í myndun íslenska þjóðríkisins? Í bókinni er leitað svara við þessum spurningum. Markmiðið hennar er að gera grein fyrir eðli og þróun þeirrar þjóðernishyggju sem greina má í stjórnmálaorðræðu íslenskrar verkalýðshreyfingar og þeirra flokka sem stofnaðir voru í hennar nafni á árunum 1901–1944. (Bókatíðindi 2008).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124203094344,"sku":"OSC-44655","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49139.jpg?v=1754780103","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/nytt-folk-49139-44655","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}