{"product_id":"og-eg-skal-hreyfa-jorina-78267-40029","title":"Og ég skal hreyfa jörðina # 78267","description":"Og ég skal hreyfa jörðina. Forngrísku stærðfræðingarnir og áhrif þeirra. Eftir Jón Þorvarðarson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHvernig stendur á því að Pýþagóringar höfðu óbeit á tölunni 17?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHvernig tókst Arkímedesi að stela sólinni?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrir hvaða sakir var Anaxagóras settur í tukthús?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHvernig tókst Eratosþenesi að reikna stærð jarðarinnar?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessum spurningum ásamt fjölmörgum öðrum svarar höfundur í ítarlegasta og vandaðasta verki sem til þessa hefur verið ritað á íslensku um sögu forngrískrar stærðfræði - sögu sem í mörgum tilvikum teygir sig til nútímans. Bókin er ríkulega myndskreytt og prentuð í lit.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞau andlegu þrekvirki sem unnin voru í fornöld hafa ávallt vakið undrun jafnt sem aðdáun, en saga hinna djúpvitru hugsuða sem þá lifðu er ekki síður athygliverð. Þeir ruddu mörgum steini úr götu vísindanna, léku með þvílíkri snilli á flesta strengi stærðfræðinnar að furðu sætir. Saga þessara manna er svo áhrifamikil að hún má ekki gleymast.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124902560072,"sku":"OSC-40029","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/43564.jpg?v=1754791235","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/og-eg-skal-hreyfa-jorina-78267-40029","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}